Ég er alltaf að senda póstkort út um allan heim þessa dagana í gegnum svona póstkortaskiptisíðu. Mjög gaman. Og ég hef alltaf skrifað sem kynningu á sjálfri mér: "My name is Sigga Rósa and I am a 23 years old girl from Iceland." En svo varð ég 24 ára núna á laugardag. Og þá finnst mér allt í einu asnalegt að skrifa 24 ára gömul stelpa... Furðulegt. Eins og ég sé eitthvað breytt á fáeinum dögum. En "24 years old women" hljómar álíka asnalega. Sérstaklega þar sem mér finnst ég engan veginn vera kona... Gæti "24 years old young women" gengið...? Nei held ekki... "24 years old female"?? Eða er það kannski bara komið á það stig að ég sleppi því að segja hvað ég er gömul....? Þá er maður formlega orðinn gamall. :þ
Hvar er vendipunkturinn eiginlega á milli stelpu og konu? 24 ára...?
3 ummæli:
Ég ætla rétt að vona að þú ætlir þér ekki að vera margar konur Sigga mín ;)
Annars er það woman fyrir eina konu (women fyrir fleiri) :)
Æ já. Meinti það. :þ
Hæhæ.
Var að flakka eitthvað um á netinu og fann síðuna þína og vildi bara kvitta fyrir komuna:o)
Er maður ekki alltaf stelpa í sér:Þ
Kv. Sveinbjörg María (úr FSu.. hehe.. ;o)
Skrifa ummæli