þriðjudagur, janúar 23, 2007

Söguleg stund og aumingja Ísland??

Í gær gerðist sögulegur atburður í vinnunnu minni. Mér tókst að klára á 4 tímum og 49 mín.! :) Í tilefni að þessum merkis atburði ætla ég að lýsa starfinu mínu aðeins. Ég hef lent í alls kyns raunum og... já, aðalega raunum. Í fyrsta lagi valdi ég mér besta tímann til að stunda blaðaútburð. Mesti snjór í 13 ár! Frábært! Kerran er alveg nógu þung fyrir... Svo hef ég líka fengið að prófa öll veður held ég bara. Rigning, glerhálka, brjálað frost og svo auðvitað skafrenningurinn um daginn. Svo eru það hundarnir. Ég er farin að skilja þennan brandara með hunda og póstinn... Ein beit mig um daginn!!! Ég var ekkert smá móðguð! Ég var bara í mestu makindum að koma labbandi með blaðið að húsinu. Kemur hundurinn þá ekki bara á urrandi siglingu og hoppar upp og bítur mig! Piff! Svo er annar sem urrar alltaf á mig. Það var eiginlega ekki fyrr en í gær að ég sannfærðist um að þetta var hundur. Hann gefur nefninlega frá sér furðulegstu hljóð, svona sambland af ljóni og risaeðlu... Ekki mjög kræsilegt. En í gær hafði hann fyrir því að gelta einu sinni á mig. Það var eiginlega hálfgerður léttir að vita að þetta væri örugglega hundur því ég var farin að ímynda mér alls kyns skrímsli... Enda ekki annað hægt miðað við hljóðin! Þá verð ég nú að segja að kisunar eru talsvert viðmótsþýðari. :) Það er til dæmis ein sem bíður alltaf eftir mér í glugganum þegar ég kem með blaðið. :) Og svo er önnur sem er annað hvort ekki alveg viss um hvar hún á heima eða vill gerast blaðberi. Hún labbar nákvæmlega sömuleið og ég. Frá einu húsi í það næsta, út alla götuna. Furðulegt. Svo er eitt sem ég átta mig ekki alveg á... Á einu húsinu sem ég er að bera út í er skilti. Frekar stór, upplýst skilti. Og hefur öruglegga kostað sitt. Og á því stendur sá merki boðskapur: "Aumingja Ísland". ????? Hver er tilgangurinn með að eyða peningum í svoleiðis? Ég skil það ekki. Og hafa þetta við útidyrahurðina sína... Og upplýst í þokkabót! Furðuleg.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ blaðburðarkona

Það eru aldeilis hrakningarnar hjá þér við blaðaútburðinn.Við söknum þín hér og krakkarnir spyrja oft um þig. Gangi þér vel með blöðin og hundana.

Kv. Harpa

Nafnlaus sagði...

Er þetta ekki skiltið hjá honum hvað hann nú heitir... gaurinn sem ert titlaður mótmælandi Íslands?